Select Page

Um vefkökur

1. Hvað eru vefkökur?
Vefkaka er lítil textaskrá sem er vistuð á tölvu eða öðrum snjalltækjum þegar vefsvæði er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskrá er geymd á vefvafra notenda og vefurinn þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þannig er hægt að senda ákveðnar upplýsingar í vafra notenda sem getur auðveldað aðgang að ýmsum aðgerðum.

2. Notkun á vefkökum.
Vefurinn Flugréttur.is notar bæði vefkökur frá fyrsta og þriðja aðila. Vefkökur frá fyrsta aðila eru vefkökur sem senda eingöngu upplýsingar til vefsins Flugréttur.is. Vefkökur frá þriðja aðila eru tilkomnar vegna þjónustu sem Flugréttur.is notar og senda upplýsingar til vefsvæðis í eigu þriðja aðila. Viðkomandi aðilar kunna einnig að tengja upplýsingar fengnar af vefsvæði Flugréttur.is við aðrar upplýsingar sem notendur hafa látið þeim í té, eða upplýsingar sem þeir hafa safnað með notkun notenda á þeirra þjónustu.

3. Um tölfræðikökur
Flugréttur.is notar tölfræði- og aðlögunarkökur til að greina umferð um vefinn www.flugrettur.is og safna tölfræðilegum upplýsingum um notkun vefsvæðisins og árangur markaðsherferða.

Upplýsingarnar eru notaðar til að þróa og bæta þjónustu vefsins með því að fá innsýn í vefhegðun notenda og gera leit að tilteknu efni auðveldari. Einnig eru kökurnar nýttar til þess að aðlaga vefsíður og þær forritaðar að þörfum hvers og eins til að bæta upplifun viðskiptavina og birta markviss vörumeðmæli.

Upplýsingar sem safnað er af þriðja aðila fela ekki í sér viðkvæmar persónuupplýsingar sem gera kleift að bera kennsl á notandann (t.d. nafn, kennitölu og/eða netfang) og hægt er að slökkva á notkun þeirra í stillingum óski notandinn eftir því.

4. Kökur frá þriðja aðila.
Þessar kökur (e. third-party cookies) nota vefljós, pixlamerki og svipaða tækni til að safna og nota ákveðnar upplýsingar um athafnir notenda á vefnum, www.flugrettur.is, til þess að álykta um áhugamál notenda og birta markvissar auglýsingar.

Vefurinn Flugréttur.is notar slíkar kökur á vef sínum (m.a. frá Google og Facebook). Kökur þriðja aðila gera það að verkum að þessir aðilar geta þekkt tæki aftur þegar notandi heimsækir vefsvæðið og jafnvel önnur vefsvæði. Þessar kökur eru notaðar til þess að gera auglýsingar meira viðeigandi fyrir notendur út frá áætluðum áhugamálum þeirra.

Kökur frá þriðja aðila safna einnig upplýsingum um heimsóknir viðskiptavina á vefinn www.flugrettur.is til að fylgjast með árangri auglýsinga og markaðs starfsemi þeirra á netinu (til dæmis hversu oft notandi smellir á auglýsingu okkar). Upplýsingar sem safnað er af þriðja aðila fela ekki í sér persónuupplýsingar sem gera honum kleift að bera kennsl á notandann. Á grundvelli þess áskilur Flugréttur.is sér rétt til að birta notendum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Facebook og Google. Þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar geta slökkt á notkun á vefkökum.

5. Meðferð á persónuupplýsingum
Hægt er lesa persónuverndaryfirlýsingu vefsins Flugréttur.is hér. Allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á vefkökum verða meðhöndlaðar og unnið með í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Flugréttur.is lýsir því yfir að ekki verði unnið með slíkar upplýsingar í nokkrum öðrum tilgangi en að ofan greinir og upplýsingarnar verði ekki varðveittar lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu. Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað.